mánudagur, apríl 24, 2006

 

læsið bílunum ykkar

Jæja, ótrúlegt en satt þá hef ég ekkert að gera næstu 20 mínúturnar.. og hvað gerir maður þá??? Kannski blogga smá. Já skessan er frekar bissí þessa dagana, með sínar 3 vinnur, fulla skóla og eitt stykki fermingarföt á herðunum. Af hverju getur maður ekki sótt um lengingu á sólarhringnum? En hvað sem því líður þá drösslast þetta nú alltaf einhvern veginn áfram og hafa Guð og einnig lukkurnar mínar nóg að gera við að redda mér fyrir horn! (reyndar ásamt fjölskyldunni, sem reynist vel á ögur stundu). Já og bara blessað sumarið komið... reyndar var hvít jörð þegar ég vaknaði í morgun og hálka á heiðinni, alveg yndislegt. En það fer nú að styttast í þetta eiginlega sumar og þá getur maður hætt sínum föstu viðskiptum við vegagerdin.is.
jæja best að fara að halda áfram að læra... en svona í endan... verk minnar starfsstéttar eru bara farin að vera metin jafts við áfengi og myndbandsupptökutækja....;) síja


http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1197640

Ummæli:
Frekar fyndið að þessu var stolið úr bílnum fyrir utan húsið hjá Sigga bróðir í Fögrumýrinni...svo þú þekkir nú þennan klæðskera :)
 
Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]





<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Gerast áskrifandi að Færslur [Atom]