miðvikudagur, febrúar 15, 2006
ólympíuleikarnir
Ofboðslega er skrýtið hvað þessir ólympíuleikar hafa skrýtin áhrif á mig, eins og allir vita sem að þekkja mig, þá hef ég engan áhuga á íþróttum... nema kannski helst að horfa á þá. Einmitt núna þegar að þessi keppni er í gangi er alltaf verið að sýna frá henni á RUV.. og ég sit sem dæmd við að fylgjast með... ég sem hef 1x farið á skíði í barnabrekkunni í bláfjöllum... ég sem hef 2x farið á skautasvellið í Rvk!!! Reyndar var maður aktívur á Gríló og alltó í gamladaga... en hvað sem því líður þá sit ég agndofa yfir þessu núna.. ég er búin að gleyma mér við að horfa á skíðaskotsgöngu og meira að segja krullu!!! hvað er það??? hverjum datt sú íþrótt í hug??!!! en ég horfi á þetta allt... og það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi góð áhrif á líkama minn og sál, því við það að fylgjast með þessum flotta, stælta og hæfileikríka fólki hef ég fengið samviskubit yfir lífstíl mínum og fór ég út í búð áðan og keypti mér ávexti og grænmeti til að maula meðan ég horfi á skautadans....
Gróan biður að heilsa með gulrót í annari og Kók light í hinni.
Gróan biður að heilsa með gulrót í annari og Kók light í hinni.
Ummæli:
<< Heim
Gott að heyra að ég geti verið með á síðunni þinni. En kemst maður ekki í link hópinn samt;-/ ??
Ta Ta Eygló
Ta Ta Eygló
...vá hvað þú þekkir marga sem eru snemma í stafrófinu, ég væri bara lang síðust með mitt J eða K nafn :)
...og skrifa meira takk :)
Skrifa ummæli
...og skrifa meira takk :)
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim
Gerast áskrifandi að Færslur [Atom]